Real undirbýr 220 milljóna evra tilboð í Olise - Arsenal og Liverpool með augastað á Barcola - Man Utd vill landsliðsmarkvörð Paragvæ
Besta Álitið: Hver kemur heim í glugganum?
Lárus Orri: Var geldur á miðjunni
Óskar Borgþórs: Draumadrátturinn minn
Venni: Frábært að geta sett hann inn á
Besta Álitið: Hvaða lið á eftir að snúa genginu við?
Besta Álitið: Hvaða lið getur veitt Víkingum keppni?
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
banner
   lau 26. júní 2010 17:28
Magnús Már Einarsson
Óli Stefán Flóventsson: Kann vel við sveitalífið
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Óli Stefán Flóventsson, spilandi þjálfari Sindra, var ánægður eftir 7-2 sigur liðsins á Hvíta riddaranum í 3.deildinni í dag. Sindri er eftir sigurinn í þriðja sæti í A-riðli en liðið setur stefnuna á að komast í úrslitakeppnina.

,,Það er markmiðið hjá okkur í smar að komast í úrslitakeppnina. Þetta er hörkuerfiður riðill og hörkufín fótboltalið þarna. Það má ekkert út af bregða, það eru 4-5 lið sem koma til með að berjast um þetta," sagði Óli Stefán við Fótbolta.net.

Óli Stefán tók við Sindra síðastliðið haust og hann kann vel við sig á Höfn í Hornafirði.

,,Ég er sveitamaður sjálfur úr Grindavík og kann vel við sveitalífið. Það fer mjög vel um mig og fjölskylduna þarna, þetta er stórfínt."

Óli Stefán leikur sjálfur í vörninni hjá Sindra og hann segist vera í fínu formi núna eftir að hafa verið gagnrýndur í fyrra fyrir að vera ekki í nógu góðu standi.

,,Ég tók mér eitthvað af kílóum. Eftir mikla pressu frá þeim í fyra þá varð ég að létta mig aðeins og ég er í góðu standi núna."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
banner
banner
banner