,,Við komum ekki nógu vel inn í þennan leik og vorum heppnir að hafa 0-0 í hálfleik en við ákváðum í hálfleik að bretta upp ermarnar og sýna að við værum alvöru lið," sagði Helgi Sigurðsson sem skoraði bæði mörk Víkings í 2-0 sigri á KA í dag.
,,Við kláruðum leikinn á fyrsta korterinu í seinni hálfleik og svo var bara að sigla þessu í hús. Það tókst mjög vel og frábær karakter sigur þó svo við höfum oft spilað betur en þetta í sumar."
,,Við erum með gott sjálfstraust í liðinu og þó hlutirnir hafi ekki fallið með okkur í fyrri hálfleik þá vissum við að við hefðum 45 mínútur til að rétta úr þessu og við gerðum það svo sannarlega."
,,Það verður líka alltaf miklu léttara þegar við náum að halda markinu okkar hreinu, þá þurfum við ekki að skora mörg. Nú höfum við haldið hreinu í fjóra eða fimm leiki í röð og það er frábært að hafa svoleiðis vörn og miðju bakvið sig sem passar upp á það og þá er það okkar að reyna að koma einu til tveimur inn og það gaf sigurinn í dag."
,,Það er alltaf gaman að skora. Það er alltaf verið að röfla um að ég skori bara úr vítum en ef menn hafa verið að horfa á fótboltaleiki undanfarið þá sjá menn að menn verða líka að skora úr vítum þegar þeir fá þau, menn eru að klikka í sí og æ. En auðvitað er gaman að skora í opnu spili og nú er ég kominn með fimm mörk, vonandi verða þau fleiri í sumar."























