Ásmundur: Vissi ekki að þeir væru svona 'sjeikí'
,,Við töluðum um það fyrir leikinn að við værum sáttir með eitt stig en hæstánægðir með þrjú stig," sagði Ásmundur Guðni Haraldsson þjálfari Gróttu eftir 2-2 jafntefli gegn ÍR í 1. deildinni í kvöld.
,,Úr því sem komið var, við vorum komnir 2-1 undir á lélegum 10 mínútna kafla hjá okkur í byrjun seinni hálfleiks. Við náum að koma til baka og ég ætla ekki að fara að svekkja mig á þessu. Við fengum þarna 2-3 sénsa til að skora í lokin og hirða þrjú stig."
,,Ef við nýtum öll tækifæri sem við fáum þá klárum við alla leiki en það hefur ekki dottið þannig með okkur í sumar að við höfum verið með 100% nýtingu í færunum okkar. Að fara 1-0 yfir í hálfleik var allt í lagi en ég hefði að sjálfsögðu viljað fara 2-3 núll yfir."
,,Ég er mjög ánægður með að við skyldum halda út í seinni hálfleik. Við ætluðum að bakka, leyfa þeim að koma aðeins og búa til svæði fyrir aftan þá og eiga pressuna inni. Við þurftum á henni að halda þegar við vorum komnir 2-1 undir."
,,Þá fórum við að pressa á þá og ég vissi að þeir væru' sjeikí' undir pressu en vissi ekki að þeir væru svona 'sjeikí' undir pressu. Þá hefðum við komið fyrr á þá og jafnvel byrjað leikinn á því ef ég hefði haft þannig trú á því að þeir væru svona 'sjeikí'."
Nánar er rætt við Ásmund í sjónvarpinu að ofan.





















