Real undirbýr 220 milljóna evra tilboð í Olise - Arsenal og Liverpool með augastað á Barcola - Man Utd vill landsliðsmarkvörð Paragvæ
Besta Álitið: Hver kemur heim í glugganum?
Lárus Orri: Var geldur á miðjunni
Óskar Borgþórs: Draumadrátturinn minn
Venni: Frábært að geta sett hann inn á
Besta Álitið: Hvaða lið á eftir að snúa genginu við?
Besta Álitið: Hvaða lið getur veitt Víkingum keppni?
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
banner
   mið 28. júlí 2010 23:58
Alexander Freyr Tamimi
Gunnar Már Guðmundsson: Er ekki FH - KR helvíti stór leikur
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
,,Ólsararnir eru með mjög gott lið. Við vissum að þetta er skipulagt og við urðum að brjóta þá niður," sagði Gunnar Már Guðmundsson miðjumaður FH eftir 3-1 sigur liðsins á Víkingi Ólafsvík í undanúrslitum VISA-bikarsins í kvöld.

Gunnar Már kom inn á sem varamaður í fyrri hálfleik þegar Jón Ragnar Jónsson meiddist. Gunnar Már er að koma til baka eftir meiðsli en hann skoraði fyrsta mark FH í kvöld.

,,Maður er að reyna að komast í gang eftir 100% meiðsli. Maður finnur stigsmun á hverri viku og þetta fer að verða gott."

KR og Fram mætast í hinum undanúrslitaleiknum á morgun en hverjir eru óskamótherjar Gunnars í úrslitaleiknum? ,,Er ekki FH - KR helvíti stór leikur," sagði Gunnar að lokum.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
banner