,,Þetta var fínn sigur og við komum okkur inn í slaginn aftur," sagði Matthías Vilhjálmsson fyrirliði FH eftir 3-1 útisigur liðsins á ÍBV í kvöld.
FH er sem fyrr í þriðja sætinu eftir þessi úrslit en liðið er fjórum stigum á eftir Breiðablik og ÍBV.
,,Við hefðum verið komnir alltof langt á eftir ef við hefðum tapað þessum leik og við settum þetta upp sem hreinan úrslitaleik."
,,Við náðum að sigra og núna erum við bara fjórum stigum á eftir þessum pakka. Núna eigum við enn einn úrslitaleikinn á sunnudaginn á móti Blikum og það verður mjög erfiður leikur líka."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.























