,,Við ætluðum okkur sigur hér í dag og töpum og fáum ekkert út úr þessu. Auðvitað er ég hundsvekktur með það því að við sýndum ágæta kafla í þessum leik og áttum að skora fleiri mörk," sagði Guðmundur Benediktsson þjálfari Selfyssinga eftir 3-2 tap gegn Stjörnunni í kvöld.
,,Það sannar sig alltaf að það er mjög erfitt að vinna leiki þegar þú ætlar að gefa 3-4 mörk. Það er ekki hægt að fara fram á að við skorum 3-4 mörk á útivelli í hverri einustu umferð."
,,Við gerum frábært mark mjög snemma leiks og ég veit ekki hvort að menn hafi haldið að það yrði auðvelt að koma hérna á Stjörnuvöllinn, það hefur aldrei verið og var svo sannarlega ekki í kvöld. Því miður slökknaði aðeins á okkur og kviknaði í raun og veru ekki fyrr en í síðari hálfleik."
,,Þá héldum við boltanum vel og sýndum góð tilþrif að mínu mati en það dugði bara ekki til. Þess vegna er mér eiginlega drullusama hvernig við spiluðum, af því að við töpuðum. Þetta snýst um það að ná í stig og við gerðum það ekki í dag þannig að þá verðum við að gera það í næsta leik."
Næsti leikur Selfyssinga er gegn Keflvíkingum fimmtudaginn 19.ágúst næstkomandi.
,,Það er eitthvað óhemju langt frí sem við erum að fá núna, ég held að það séu 11-12 dagar. Það gefur okkur tíma til að undirbúa okkur mjög vel fyrir Keflavíkurleikinn. Það verður mikil veisla þá þegar við vígjum vonandi nýjan völl á Selfossi og við ætlum að vera klárir í það."






















