Bjarni Þór Viðarsson og Haraldur Björnsson leikmenn U21 árs landsliðs karla voru hæstánægðir eftir 4-1 sigur liðsins á Þjóðverjum í dag.
,,Þetta var glæsilegt. Allt sem við lögðum upp fyrir leikinn gekk eftir og þessi mörk voru glæsileg þannig að ég held að við höfum komið Þjóðverjunum í opna skjöldu," sagði Bjarni Þór við Fótbolta.net eftir leik.
Haraldur varði nokkrum sinnum vel í leiknum í dag og Þjóðverjunum gekk illa að koma boltanum framhjá honum.
,,Eins og leikurinn þróaðist úti þá var mikið að gera og maður bjóst við því fyrir leikinn að það yrði mikið að gera."
Hér að ofan má sjá viðtalið við þá félaga.























