Matthias Freyr Matthiasson skrifar frá Danmörku
Ólafur Jóhannesson alnafni landsliðsþjálfara Íslands í knattspyrnu er framkvæmdarstjóri stuðningsmannaklúbbsins Áfram Ísland. Fréttaritari Fótbolti.net hitti hann og fleiri stuðningsmenn á stað sem heitir O´learys í Kaupmannahöfn en þar munu stuðningsmenn Íslenska liðsins hita upp og fara svo saman á Parken en þar mun Íslenska liðið mæta því Danska í kvöld klukkan 18:15. Fótbolti.net ræddi við Ólaf um leikinn og Áfram Ísland klúbbinn.
,,Við Ólafur erum alnafnar og það er ágætt. Mér brá svoldið þegar tilkynnt var um landsliðsþjálfara á sínum tíma, ég hélt að það væri ég."
,,Ég sé svona um hina hliðina, um stemminguna og dressa fólkið upp, upphitun og að allir fari saman á völlinn, Til að skapa skemmtilegri stemmingu. Það er gaman að geta þess að Áfram Ísland klúbburinn er 10 ára í ár og það eru komnar tvær síður á feisbúkk og erum farnir að bæta aðeins í "
En hvernig helduru að leikurinn fari og hverjir muni skora.
,,Ég spái 1-2 fyrir Íslandi en ef við náum jafntefli að þá yrði það frábær úrslit. En það fer allt eftir því hvernig leikurinn spilast, gætum náð jafntefli og orðið hundóánægðir með það, fyrirfram yrðu það frábær úrslit. Það er ómögulegt að segja hver skorar, en ég hugsa að Eiður skori ekki í kvöldf" sagði Ólafur Jóhannesson alnafni landliðsþjálfarans að lokum, feikihress á O´learys í Kaupmannahöfn.
Nánar er rætt við Ólaf í sjónvarpinu hér að ofan






















