,,Þetta sýnir bara karakterinn að við kláruðum þetta. Þeir ætluðu að halda þetta út, tefja og svona í lokin en við kláruðum þetta," sagði Guðjón Pétur Lýðsson leikmaður Hauka eftir 2-1 sigur liðsins á Fram í kvöld.
,,Ég var svolítið kræfur, ég var farinn að kalla á Daða (Lárusson, markvörð) og alla að fara fram í lokin. Það var svolítið grimmt en það skilaði sér í marki."
Haukar mæta Fylki í Árbænum á sunnudag og þurfa að á einhverju út úr þeim leik til að eiga áfram möguleika á að bjarga sér.
,,Við erum að fara í þann leik til að berjast fyrir lífi okkur og við ætlum að láta þá heldur betur finna fyrir því. Það verður baráttuleikur," sagði Guðjón sem fékk gula spjaldið í dag og verður því í banni gegn Val í lokaumferðinni.
,,Ég hélt að ég væri í banni á móti Fylki og var brjálaður síðustu tuttugu en það er allt í lagi."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.






















