Oliver Glasner, Dro Fernandez, Jörgen Strand Larsen, Jean Philippe-Mateta, Vinicius Jr, Federico Chiesa og fleiri koma við sögu.
Lítur fyrst og fremst á sig sem Norðmann - „Mig langar bara að vinna"
Siggi Lár: Ætla ekki ræða einhver ákvæði í samningnum núna
Valdi Keflavík fram yfir ÍBV - „Þykir rosalega vænt um fólk í Eyjum“
Gummi Magg: Sá fyrir mér öðruvísi endi með uppeldisfélaginu
Fótbolta nördinn - Fótbolti.net vs Fylkir
„Myndi ekki vilja fara aftur upp á geðheilsuna“
17 ára á toppnum í Danmörku - „Finnst ég vera á sama getustigi ef ekki betri“
Ísak Andri tók fund með meisturunum - „Skoða alla möguleika núna í janúar“
Fótbolta nördinn - Draumaliðið vs KR
Kristall Máni: Hef alltaf vitað að fótboltahæfileikarnir hverfa ekki
Jóladagatalið: Stólar fullir af hálfvitum
Jóladagatalið: „Vonandi hefur Gummi Ben eitthvað lært af þessu“
Kominn í grænt eftir eitt tímabil í Svíþjóð - „Eftir það tók ég ákvörðun um að fara annað“
Ætlaði ekki að koma heim - „Þegar ég talaði við Óskar lá þetta fyrir“
Jóladagatalið: Kristján Óli eftir að hafa skorað ljótasta markið á ferlinum
Jóladagatalið: Auðunn Blöndal og Gaui Þórðar í geitungavandræðum
Ísak bendir á augljóst vandamál: Erum ekki nógu góðir þar
Jóladagatalið: Allir á þjóðhátið, það er skylda hjá mér!
Æfingaleikur: Aron Kristófer skoraði frá miðju gegn Leikni
Jóladagatalið: Þið vitið aldrei neitt um okkur
   fös 01. október 2021 23:02
Arnar Laufdal Arnarsson
Heiðdís: Það verður partý í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Heiðdís Lillýardóttir varnarmaður Blika var í miklu stuði í viðtali eftir leik er Blikastelpur urðu Mjólkurbikarmeistarar eftir 4-0 sigur á Þrótti Reykjavík.

"Tilfinningin er geggjuð, þetta var geggjaður leikur og við erum ógeðslega stoltar" Sagði Heiðdís í viðtali eftir leik.

"Við vorum mjög þolinmóðar og spiluðum bara okkar leik, héldum vel í boltann og það gekk bara allt upp"

Lestu um leikinn: Breiðablik 4 -  0 Þróttur R.

Þróttarastelpur gáfu Blikum alvöru leik þrátt fyrir að niðurstaðan var 4-0.

"Já þær byrjuðu af krafti og líka í seinni hálfleik, þær gáfu ekkert eftir og við vissum þær myndu gefa okkur alvöru leik"

Er atvinnumennskan eitthvað í kortunum hjá Heiðdísi?

" Ekki eins og er sko en ég bara veit það ekki alveg" Sagði Heiðdís og hló.

2. sæti í deild, bikarmeistarar og Blikastelpur komnar í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu, hvernig metur Heiðdís þetta tímabil?

" Þetta var skemmtilegt tímabil og við erum bara nokkuð sáttar með frammistöðu okkar í sumar"

"Það verður bara partý í kvöld sko" Sagði svo Heiðdís í lokin þegar hún var spurð hvort hún væri með skilaboð til Kópacabana, stuðningsmannasveit Blika sem voru með frábæran stuðning allann leikinn.
Athugasemdir
banner