„Fyrst og fremst vorum við að leita eftir frammistöðu'' segir Eiður Benedikt Eiríksson, annar þjálfari Vals, eftir 1-1 jafntefli gegn Kefkavík á útivelli.
Lestu um leikinn: Keflavík 1 - 1 Valur
„Við erum náttúrulega búnir að tryggja titilinn og..., koma hérna klukkan tvö á laugardegi í ekkert sértakt veður, við vildum góða frammistöðu og mér fannst við fá hana.''
Vals konur voru mikið meira boltann eins og kom fram í textalýsingu leiksins. En þrátt fyrir það náðu þær aðeins einu marki í leiknum.
„Auðvitað vorum við að reyna að fá þrjú stig, það bara gekk ekki inn í teignum og þær voru þéttar allan tímann. Við skoruðum eitt ágætis mark, en því miður komu ekki fleiri.''
Keflavík skoruðu frekar heppilegt mark þar sem vindurinn í Keflavík hafði áhrif á markið.
„Já, það var klárlega stoðsending.''
Næsti leikur Vals er gegn Selfoss.
„Við viljum að sjálfsögu vinna þegar við tökum á móti titlum. Við munum eiga góða æfingaviku og svo góðan leik á móti Selfoss.''
Hægt er að horfa á allt viðtalið fyrir ofan
Athugasemdir