Börsungar vilja varnarmann Bournemouth - Man Utd vill tvo leikmenn - Igor Thiago til Liverpool?
Kristall Máni: Hef alltaf vitað að fótboltahæfileikarnir hverfa ekki
Jóladagatalið: Stólar fullir af hálfvitum
Jóladagatalið: „Vonandi hefur Gummi Ben eitthvað lært af þessu“
Kominn í grænt eftir eitt tímabil í Svíþjóð - „Eftir það tók ég ákvörðun um að fara annað“
Ætlaði ekki að koma heim - „Þegar ég talaði við Óskar lá þetta fyrir“
Jóladagatalið: Kristján Óli eftir að hafa skorað ljótasta markið á ferlinum
Jóladagatalið: Auðunn Blöndal og Gaui Þórðar í geitungavandræðum
Ísak bendir á augljóst vandamál: Erum ekki nógu góðir þar
Jóladagatalið: Allir á þjóðhátið, það er skylda hjá mér!
Æfingaleikur: Aron Kristófer skoraði frá miðju gegn Leikni
Jóladagatalið: Þið vitið aldrei neitt um okkur
„Láki tengdi okkur við góðan mann erlendis"
Ævintýraþjálfari Völsungs: Þegar þú ferðast um heiminn verður þú að taka ákvarðanir hratt
Ólafur Ingi: Heilt yfir stoltur en fannst við vera pínu klaufar
Margt í gangi í hausnum á Damir fyrir leikinn - „Spurðu þá sem stjórna klúbbnum“
Höskuldur: Þau eru ekkert verðugri en við að vera þarna
Anton Ari: Sannaði fyrir mér að við áttum alveg erindi hingað
Jóladagatalið: Frasabók Margrétar Láru
Arnór Gauti: Þetta er bara sturlun
Sá fyrir sér að ljúka ferlinum með Blikum: Því miður vildi klúbburinn leita eitthvað annað
   mán 12. júní 2023 22:13
Stefán Marteinn Ólafsson
Bryndís Arna: Það er alltaf stefnan að reyna að vera markahæst
Kvenaboltinn
Bryndís Arna Níelsdóttir settir þrennu fyrir Val
Bryndís Arna Níelsdóttir settir þrennu fyrir Val
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Topplið Vals tóku á móti Tindastól í kvöld á Origo vellinum við hlíðarenda þegar 8.umferð Bestu deildarinnar fór fram.

Valskonur voru á toppi deildarinnar fyrir leikinn í kvöld en Tindastóll sátu í 7.sæti deildarinnar fyrir leikinn.


Lestu um leikinn: Valur 5 -  0 Tindastóll

„Ég er bara rosalega ánægð með þessa frammistöðu hjá mér í dag. Hann bara fór inn og þetta var svolítið stöngin út hjá mér í síðasta leik þannig núna var það bara geggjað að fá inn þessi þrjú mörk og var bara geggjuð tilfining." Sagði Bryndís Arna Níelsdóttir framherji Vals sem setti þrennu í kvöld. 

„Við vorum svolítið ekki að ná að tengja sendingar og halda boltanum fyrstu 30 en eftir þetta fyrsta mark hjá okkur þá náðum við góðum spilaköflum og það var bara svo mikil ró í spilamennsku okkar og við fengum fullt af færum og svo í seinni hálfleik þá vorum við að halda boltanum mjög vel og það var mikill karakter og agi í þessu og mér fannst við bara sigla þessu heim strax eiginlega." 

„Eftir þetta fyrsta mark þá fór svolítil ró yfir okkur og við spiluðum bara eins og við viljum spila og eins og Valur gerir og tókum þetta sterka lið hérna á okkar heimavelli." 

Bryndís Arna er kominn með 6 mörk í deildinni og er markahæsti leikmaður mótsins til þessa og viðurkennir að hún vilji ná gullskónnum.

„Það er alltaf stefnan að reyna að vera markahæst, ég er nátturlega striker og vil skora mörk og mér finnst sjálfstraustið vera mjög hátt núna og ég ætla bara að halda áfram að spila eins og ég er að gera og þá getur þetta ekki klikkað held ég." 

Nánar er rætt við Bryndísi Örnu Níelsdóttur í spilaranum hér fyrir ofan.


Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner