Fyrirliði Vals var súr í leikslok tapsins gegn Domzale í kvöld.
"Ég er smá súr að hafa tapað þessum leik. Mér fannst við ná að loka þokkalega á þá í seinni hálfleik. Þeir náðu ekki að opna okkur mikið og ég hefði viljað halda þessu í 1-1".
"Ég er smá súr að hafa tapað þessum leik. Mér fannst við ná að loka þokkalega á þá í seinni hálfleik. Þeir náðu ekki að opna okkur mikið og ég hefði viljað halda þessu í 1-1".
Haukur Páll féll eftir duglega tæklingu frá Firer sem var á gulu spjaldi en norski dómarinn dæmdi ekkert, hver er hans sýn á atvikið?
"Það getur vel verið að hann hafi farið í boltann, en hann fór klárlega í mig. Mér fannst þetta frekar ruddaleg tækling en mér skilst að hann hafi bara ekki dæmt neitt. Ég get svo ekki sagt um þetta víti fyrr en ég sé það en Siggi segist hafa farið beint í boltann og þá er að ansi dýrt!"
Hvernig metur Haukur framhald þessa einvígis?
"Við eigum ennþá séns í þessu, það er alltaf séns í fótbolta og við förum út til að sækja til sigurs, það verður erfitt auðvitað".
Það er töluvert álag á leikmenn Vals þessa dagana, hvað finnst Hauki um það?
"Þetta er ekkert of töff. Sumir leikmenn í okkar liði eru með eymsli hér og þar og þá er þetta erfitt, en það er best að æfa sem minnst og spila sem mest!"
Nánar er rætt við Hauk í viðtalinu sem fylgir fréttinni.
Athugasemdir