Aron Elís Þrándarson átti magnaðan leik fyrir Víking í kvöld og skoraði tvö og lagði upp eitt í 3-1 sigri gegn Keflavík. Kristján Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, hrósaði Aroni í hástert eftir leik.
„Aron Elís vann þennan leik. Það var frábært að sjá hann spila. Ég hvet alla til að mæta á völlinn og horfa á hann spila meðan hann er hér á landinu. Hann spilaði fantagóðan leik og við réðum ekkert við hann," sagði Kristján.
Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir