„Það er gaman að vera kominn aftur og ánægjulegt að fá tækifæri til að sýna sig," segir Eggert Gunnþór Jónsson.
Eggert er í íslenska landsliðshópnum sem mætir Belgíu í Þjóðadeildinni á morgun. Þetta er í fyrsta sinn í langan tíma sem þessi þrítugi miðjumaður er valinn í landsliðið.
Hvenær spilaði hann síðast landsleik?

„Það var í október 2012. Það eru komin fjögur ár síðan ég var síðast í hóp," segir Eggert.
Hann hefur verið að spila mjög vel með SönderjyskE í dönsku úrvalsdeildinni.
„Ég hef verið að spila mikið og alltaf verið tilbúinn ef kallið (landsliðsvalið) kæmi. Ég hef ekki mikið verið að hugsa út í það en maður vill auðvitað vera með," segir Eggert.
Fótbolti.net spjallaði við hann á liðshótelinu í Belgíu í dag. Meðal annars var rætt um frammistöðuna í Danmörku og leikinn gegn Belgum.
Athugasemdir