Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mán 15. febrúar 2010 19:07
Alexander Freyr Tamimi
Heimild: Goal.com 
Glen Johnson hrósar stuðningsmönnum Liverpool í hástert
Glen Johnson elskar stuðningsmenn Liverpool.
Glen Johnson elskar stuðningsmenn Liverpool.
Mynd: Getty Images
Glen Johnson leikmaður Liverpool segir að frábærir stuðningsmenn félagsins geri það að verkum að hann geti ekki beðið eftir því að stíga upp úr þeim meiðslum sem eru að hrjá hann.

Liverpool mætir Unirea á fimmtudag í Evrópudeildinni og vonast Johnson til að geta snúið aftur í þeim leik og hjálpað liðinu í átt að eina titlinum sem þeir eiga möguleika á í ár.

„Við vorum óheppnir gegn Arsenal, en þetta var fínn leikur og við vitum að það er erfitt að sigra okkur," sagði Johnson.

„Ég þarf að fá hnéð aftur í lag og reyna að komast aftur inn í liðið. Vonandi getum við endað í einu af fjórum efstu sætunum og verið þá sáttir."

„Stuðningsmenn Liverpool eru alveg frábærir. Fólk talar um hversu góðir Portsmouth stuðningsmennirnir eru, og það er rétt, en stuðningsmenn Liverpool eru öllum öðrum betri."

„Þegar maður gengur út á Anfield og heyrir stuðningsmennina syngja, þá hjálpar það. Hver einasti leikmaður er gríðarlega stoltur af því að klæðast treyjunni."
banner
banner