Hörður Sævar Óskarsson var í viðtali í kvöldfréttum RÚV fyrir leik Íslands og Portúgal og afrekaði þar að spá hárrétt fyrir um bæði úrslit leiksins og markaskorara.
Hörður taldi líklegast að leikurinn færi 1-1, eins og varð raunin - en lét ekki þar við sitja heldur nefndi þá Nani og Birki Bjarnason sem markaskorara.
Fróðlegt væri að vita hversu háan stuðul á þessa ágiskun Hörður hefði fengið, en líklega hefði hann verið töluvert hár.
Myndbrot úr viðtalinu má sjá hér fyrir neðan.

Þessi getur kannski sagt mér hvaða tölur koma í lottóinu um helgina pic.twitter.com/cRrR69Ysg6
— Lillý Valgerður (@lillyvalgerdur) June 14, 2016
Athugasemdir