Branthwaite, Zirkzee og Olise til Man Utd? - Potter til Hollands - Nunez til Barca og Osimhen til Chelsea
   þri 14. júní 2016 23:45
Elvar Geir Magnússon
Ari Freyr: Ronaldo henti sér niður og veifaði höndum
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var erfiður leikur," sagði Ari Freyr Skúlason eftir jafntefli Íslands og Portúgals í kvöld en viðtalið má heyra í spilaranum hér að ofan.

„Við börðumst þvílíkt fyrir hvorn annan. Við erum mjög glaðir með stigið. Það var geggjað þegar Birkir skoraði."

„Við mættum virkilega góðu liði en sýndum að það sem við gerðum í undankeppninni getum við líka gert hérna."

Cristiano Ronaldo vildi ekki taka í höndina á Ara eftir leik.

„Hann var að pirra sig allan leikinn, henda sér niður og veifa höndunum."
Athugasemdir
banner
banner
banner