Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 05. október 2018 11:13
Elvar Geir Magnússon
Myndir frá kvöldinu afdrifaríka hjá Ronaldo
Vel fór á með Ronaldo og Mayorga á myndunum.
Vel fór á með Ronaldo og Mayorga á myndunum.
Mynd: Twitter
Opinberaðar hafa verið myndir og myndband af Cristiano Ronaldo spjalla og dansa við Kathryn Mayorga á Rain næturklúbbnum 2009.

Myndirnar voru teknar kvöldið sem Mayorga segir að portúgalska ofurstjarnan hafi nauðgað sér.

Í vikunni var greint frá því að lögreglan í Nevada hafið tekið upp rannsókn á ný vegna ásakana Mayorga.

Ronaldo heldur fram sakleysi sínu en fjallað hefur verið um málið í Der Spiegel. Þar segir Mayorga að lögfræðingar Ronaldo hafi borgað sér fyrir að þegja yfir nauðguninni.

Ásakanir Mayorga hafa mikil áhrif en hlutabréf í félagsliði hans, Juventus, hafa fallið um 5,37%.

Sjá einnig:
Nike hefur áhyggjur af ásökunum á hendur Ronaldo
Ronaldo vísar ásökunum um nauðgun á bug
Ronaldo: Nauðgun alvarlegur glæpur sem stríðir gegn öllu sem ég stend fyrir
Enginn Ronaldo í portúgalska landsliðshópnum
Juventus stendur við bakið á Ronaldo
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner