Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 26. ágúst 2019 10:38
Elvar Geir Magnússon
Njarðvík kvartar til KSÍ vegna Magna - „Óásættanlegt"
Sveinn Þór Steingrímsson, þjálfari Magna.
Sveinn Þór Steingrímsson, þjálfari Magna.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Njarðvík hefur sent KSÍ formlega kvörtun vegna ummæla þjálfara Magna í Inkasso-deildinni um helgina. Njarðvík vann fallbaráttuslag liðanna 2-1.

„Hann vænir Ivan Prskalo leikmann Njarðvíkur um að vera svikara og svindlara," segir í yfirlýsingu Njarðvíkinga varðandi viðtal við Svein Þór Steingrímsson sem birtist hér á Fótbolta.net. Þeir segja Svein hafa ráðist á leikmann Njarðvíkur og dómara leiksins með mjög ódrengilegum hætti.

Þá kvartar Njarðvík yfir framkomu Gauta Gautasonar, leikmanns Magna og segir að málin verði sett í réttan farveg innan KSÍ.

Njarðvík og Magni eru í fallsætum í Inkasso-deildinni.



Yfirlýsing Njarðvíkur
Stjórn knattspyrnudeildar Njarðvíkur fordæmir ummæli sem Sveinn Þór Steingrímsson þjálfari meistaraflokks Magna lét falla í viðtali við fjölmiðilinn Fótbolti.net eftir leik og Magna í 18. Umferð Inkasso-deildinni á Rafholtsvellinum í Reykjanesbæ Njarðvíkur þann 24. ágúst sl.

Þau ummæli Sveins Þórs sem fordæmd eru, er þegar hann vænir Ivan Prskalo leikmann Njarðvíkur um að vera svikara og svindlara en þau ummæli lætur hann falla þegar hann er inntur eftir viðbrögðum við rauðu spjaldi sem dómari leiksins gefur Sveini Óla Birgissyni fyrirliða Magna vegna atviks sem verður á 50. mín. leiksins. Þessi ummæli lætur hann falla eftir að hafa rætt við sinn leikmann eins og hann segir sjálfur i viðtalinu.

Á myndskeiði sem fylgir yfirlýsingu þessari má sjá að umrætt atvik réttlætir brottvikningu og á ekki að sjást á knattspyrnuvelli og gerir því umrædd ummæli því mun alvarlegri þar sem Sveinn Þór ræðst bæði á leikmann Njarðvíkur og dómara leiksins með mjög ódrengilegum hætti.

Þá má einnig sjá í myndskeiði þessu hvar leikmaður nr. 77 Gauti Gautason í liði Magna hendir knettinum í andlit leikmanns Njarðvíkur nr. 8 Kenneth Hogg eftir að dómari leiksins hefur flautað leikinn af og dómari snýr baki í atvikið og sér því ekki atvikið til þess að refsa fyrir atvikið.

Framkoma Sveins Þórs og Gauta er með öllu óásættanleg og ber að taka alvarlega.

Knattspyrna er leikur án fordóma og ummæli sem þessi og ódrengileg framkoma að eiga sér engan stað í knattspyrnuhreyfingunni eða samfélaginu í heild.

Málið verður því sett í réttan farveg innan KSÍ.

Stjórn knattspyrnudeildar Njarðvíkur treystir því að tekið verði á málinu í samræmi við alvarleika málsins og þeir sem bera ábyrgð á ummælunum verði látnir sæta ábyrgð vegna þeirra.

Knattspyrnudeild Njarðvíkur mun ekki tjá sig frekar um málið meðan að það er til umfjöllunar hjá KSÍ

Atvik úr leik Njarðvíkur og Magna 24. ágúst 2019
Sveinn Þór: Það hjálpaði okkur allavega ekki að aðrir aðilar voru ekki tilbúnir í þennan leik
Athugasemdir
banner
banner
banner