,,Fyrri hálfleikur var mjög góður þar sem mér fannst við vera betra liðið," sagði Helgi Bogason þjálfari Njarðvíkur eftir 2-0 tap liðsins gegn Leikni R. í dag.
,,Eftir að við fáum á okkur markið fara menn með hökuna niður og náðu ekki að rífa sig upp eftir það."
,,Menn brugðust illa við að fá á sig þetta mark sem menn vildu reyndar meina að væri rangstöðumark, ég sá það ekki nógu vel."
Orri Eiríksson ræddi við Helga og hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.






















