Andrés Ellert Ólafsson, þjálfari Stjörnunnar, var ánægður eftir 4-0 sigur liðsins gegn Aftureldingu í fyrstu umferð Pepsi-deildarinnar í dag.m
,,Það má bæta allt gott og við þurfum að vinna í því," sagði Andrés Ellert við Fótbolta.net eftir leikinn.
Hin bandaríska Katie McCoy skoraði tvö mörk í leiknum í dag en Stjarnan á síðan von á meiri liðsstyrk erlendis frá.
,,Þessi sem er komin er mjög góð og síðan eru tvær í viðbót að koma eftir helgi, þær eru mjög öflugar og á svipuðum kaliber og Katie."
Nánar er rætt við Andrés Ellert í sjónvarpsviðtalinu hér að ofan.























