,,Við mættum ekki nógu vel stemmdir hérna í kvöld. Við vorum í basli í upphafi leiks og lengi vel í hálfleiknum," sagði Bjarni Jóhannsson þjálfari Stjörnunnar við Fótbolta.net eftir tap liðsins gegn Fylki í kvöld.
,,Í seinni hálfleik fannst mér við koma ágætlega inn í þetta. Við vorum alltaf líklegir, ógnuðum jafnt og þétt og eigum skot í stöng og slá."
,,Síðan eru afdrifarík mistök af okkar hálfu þegar leið á leikinn og það kostaði okkur allavega stig hér í kvöld."
Hér að ofan má sjá viðtalið við Bjarna í heild sinni.






















