,,Það er allt annað að sjá til þeirra í síðustu tveimur leikjum og að vinna tvo leiki í röð gefur okkur aukið sjálfstraustið upp á framhaldið að gera," sagði Ásgrímur Helgi Einarsson þjálfari Aftureldingar eftir 1-0 sigur liðsins gegn Grindavík í Pepsi-deild kvenna í kvöld.
Aftureldingu var ekki spáð góðu gengi fyrir mót en Þorkell Máni Pétursson, sérfræðingur Fótbolta.net, spáði liðinu meðal annars neðsta sæti.
,,Rokkarinn á X-inu ætti að halda sig á X-inu og tala um tónlistina. Hann hefur ekki hugmynd um hvað við getum og við erum að sýna í dag að þessar spár eru ekkert sem hægt er að hlusta á."
Hér að ofan má sjá viðtalið við Ásgrím í heild sinni.

























