,,Sigurinn ætlar að láta bíða eftir sér og á meðan það er verðum við að þjappa okkur saman og reyna að gera það sem fyrir okkur er lagt. Þannig hefst þetta og ekki öðruvísi," sagði Auðun Helgason leikmaður Grindavíkur eftir 1-2 tap gegn ÍBV í dag.
,,Það gengur ekki að fá þessi stig en það er margt jákvætt í þessu. Það er bara þannig að þegar liðið er komið í svona erfið mál virðist allt vera svart og neikvætt en það er engan vegin þannig. Við erum að klikka á ögurstundu og það þarf að bæta."
Nánar er rætt við Auðun í sjónvarpinu hér að ofan.





















