Gunnleifur Gunnleifsson markvörður FH var að vonum hæstánægður eftir að liðið hampaði bikarmeistaratitlinum með 4-0 sigri á KR í dag.
„Þetta er bara frábært, dásamlegt að vera orðinn bikrameistari með frábæru liði,“ sagði Gunnleifur hæstánægður við Fótbolti.net eftir leik.
„Við vorum nú bara að hugsa um 2-0, en það var tvöfalt. Við áttum þetta skilið, við vorum mjög góðir í leiknum.“
Gunnleifi fannst ekkert athugavert við vítaspyrnudómana sem skiluðu fyrstu tveimur mörkunum fyrir FH.
„Ég held að þetta hafi bara verið víti, það má alveg dæma tvö víti í leik. Víti er víti," sagði Gunnleifur.
Hann segir að menn ætli að skemmta sér vel í kvöld en að þeir séu þó hvergi nærri orðnir saddir.
„Það verður bara fjör í kvöld, en svo ætlum við að taka hinn titilinn.“






















