Guðjón Pétur Lýðsson leikmaður Hauka var skiljanlega hundsvekktur eftir 5-0 tap sinna manna gegn Stjörnunni á Vodafone vellinum í kvöld. Það var gríðarlega mikilvægt fyrir Hauka að ná sigri úr þessum leik ef þeir vildu eygja von á að halda sér í deildinni en þeir stóðust ekki prófið, svo vægt sé til orða tekið. Guðjón var að vonum ósáttur.
„Já heldur betur. Maður er reiður og pirraður eftir svona frammistöðu. Mér fannst þetta vera svona „do or die“ leikur og við hefðum klárlega átt að sýna betri leik í dag. En það þýðir ekki að væla yfir þessu, við verðum bara að taka næsta leik,“ sagði Guðjón þegar Fótbolti.net náði tali af honum eftir leikinn.
Haukar hafa einungis fengið tvö stig á Vodafonevellinum í sumar og vaknar sú spurning upp hvort að þessi völlur gegni ekki sama hlutverki og alvöru heimavöllur. Guðjón segist þó vera sáttur með að spila í Hlíðarenda.
„Ég myndi miklu frekar vilja spila hérna heldur en á gervigrasinu á Ásvöllum, það er enginn vafi á því. Það á bara að setja gras á Ásvelli,“ bætti hann við.
„Þetta lítur mjög illa út, við verðum nánast að vinna restina. Næsti leikur er úrslitaleikur og hann verðum við bara að vinna.“
Guðjón Pétur varð fyrir því óláni að klúðra víti í stöðunni 0-2 og hefði mark úr þeirri spyrnu getað breytt leiknum gríðarlega.
„Þetta var hrikalegt víti, ég ætlaði að taka hann hinum megin og ég var búinn að æfa það alla vikuna. Þetta hefði klárlega getað breytt gangi leiksins en það þýðir samt ekki að allir eigi að hætta þó að maður klúðri einu víti. Ég allavega hætti ekki sjálfur þannig að þá eigum við ekki að hætta,“ sagði Guðjón Pétur.






















