Napoli vill kaupa Dragusin - Greenwood kostar 50 milljónir punda - Man Utd vill Frenkie de Jong - Arsenal setur sjö leikmenn á sölu - Mbappe kynntur í...
   mán 03. desember 2018 08:39
Magnús Már Einarsson
Robben fer frá Bayern næsta sumar
Robben þakkar fyrir sig.
Robben þakkar fyrir sig.
Mynd: Getty Images
Hollenski kantmaðurinn Arjen Robben hefur staðfest að hann ætli að yfirgefa herbúðir Bayern Munchen næsta sumar. Hinn 35 ára gamli Robben á tíu ár að baki hjá Bayern en hann lék áður með Chelsea og Real Madrid.

„Þetta er síðasta ár mitt hjá Bayern. Þetta hafa verið falleg tíu ár en núna er tími kominn til að fara," sagði Robben.

Hollendingurinn hefur sjö sinnum orðið þýskur meistari með Bayern en hann hefur skorað 143 mörk í 305 leikjum með liðinu.

Franck Ribery gæti einnig farið frá Bayern næsta sumar en hann verður líka samningslaus þá.

Bayern hefur verið í basli í þýsku deildinni í vetur en liðið er níu stigum á eftir Borussia Dortmund sem er á toppnum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner