Miðjumaður Everton orðaður við Man Utd - Gomes til Liverpool?
Kristall Máni: Hef alltaf vitað að fótboltahæfileikarnir hverfa ekki
Jóladagatalið: Stólar fullir af hálfvitum
Jóladagatalið: „Vonandi hefur Gummi Ben eitthvað lært af þessu“
Kominn í grænt eftir eitt tímabil í Svíþjóð - „Eftir það tók ég ákvörðun um að fara annað“
Ætlaði ekki að koma heim - „Þegar ég talaði við Óskar lá þetta fyrir“
Jóladagatalið: Kristján Óli eftir að hafa skorað ljótasta markið á ferlinum
Jóladagatalið: Auðunn Blöndal og Gaui Þórðar í geitungavandræðum
Ísak bendir á augljóst vandamál: Erum ekki nógu góðir þar
Jóladagatalið: Allir á þjóðhátið, það er skylda hjá mér!
Æfingaleikur: Aron Kristófer skoraði frá miðju gegn Leikni
Jóladagatalið: Þið vitið aldrei neitt um okkur
„Láki tengdi okkur við góðan mann erlendis"
Ævintýraþjálfari Völsungs: Þegar þú ferðast um heiminn verður þú að taka ákvarðanir hratt
Ólafur Ingi: Heilt yfir stoltur en fannst við vera pínu klaufar
Margt í gangi í hausnum á Damir fyrir leikinn - „Spurðu þá sem stjórna klúbbnum“
Höskuldur: Þau eru ekkert verðugri en við að vera þarna
Anton Ari: Sannaði fyrir mér að við áttum alveg erindi hingað
Jóladagatalið: Frasabók Margrétar Láru
Arnór Gauti: Þetta er bara sturlun
Sá fyrir sér að ljúka ferlinum með Blikum: Því miður vildi klúbburinn leita eitthvað annað
banner
   fim 05. maí 2022 21:57
Þorsteinn Haukur Harðarson
Dean Martin: Njótum í kvöld en svo er það back to basics á morgun
Lengjudeildin
Dean Martin gat leyft sér að brosa eftir leik
Dean Martin gat leyft sér að brosa eftir leik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

"Ég er mjög sáttur. Við komumst 2-0 yfir snemma leiks en svo voru þeir allt í einu búnir að jafna og koma okkur aftur niður á jörðina," sagði Dean Martin, þjálfari Selfoss, eftir 3-2 sigur sinna manna gegn HK í fyrsu umferð Lengjudeildarinnar í dag.


Lestu um leikinn: HK 2 -  3 Selfoss

"Spilamennskan var nokkuð góð. Í fyrsta leik snýst þetta bara um baráttu og vilja eftir langan vetur," bætti Dean við.

Selfyssingum var almennt spáð um miðja deild, jafnvel aðeins neðar, í spám fyrir tímabilið. Dean var næst spurður hvort það væri í takt við hans væntingar eða hvort liðið stefni hærra "Hold your horses. Þetta er bara fyrsti leikurinn og við förum bara í alla leiki til að reyna að ná í úrslit. Við förum ekki að missa hausinn þó við höfum náð í einn sigur. Við njótum í kvöld og svo er það bara back to basics á æfingu á morgun."

Þá telur Deano það ólíklegt að hann bæti við leikmönnum í liðið áður en glugginn lokar.


Athugasemdir