„Við settum þetta upp sem úrslitaleik... svona á maður að vinna úrslitaleiki," sagði Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari ÍA, eftir 4-1 sigur gegn HK í Pepsi Max-deildinni.
Lestu um leikinn: ÍA 4 - 1 HK
„Ég er virkilega ánægður með vinnusemina og gæðin sem við sýndum á köflum."
Þetta er mjög mikilvægur sigur og er ÍA núna fjórum stigum frá öruggu sæti þegar sex leikir eru eftir.
„Við höfum trú á því að við séum ekkert að fara að falla. Við ætlum að halda áfram og byggja ofan á svona karakter... ég held að menn séu klárir í framhaldið. Ég tel að þetta sé í okkar höndum að tryggja okkur sæti í efstu deild fyrir næsta ár."
Hægt er að sjá allt viðtalið hér að ofan en þar ræðir Jói Kalli um dómgæsluna í leiknum.
Athugasemdir