
Víðir Þorvarðarson spilaði sinn annan leik í sumar þegar KFS tapaði 7-1 gegn HK í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins.
Lestu um leikinn: HK 7 - 1 KFS
„Þeir voru eiginlega bara heppnir í dag," sagði Víðir léttur í viðtali eftir leik.
„Plan A var bara búið eftir 27 sekúndur. Þetta var erfiður róður. Við eigum aldrei að gera neitt á móti þeim en í 2-1 fengum við færi. Þá var ég smá spenntur. Endanlega var þetta alltof erfitt."
Af hverju er Víðir ekki búinn að spila meira en tvo leiki í sumar? „Ég hætti eftir síðasta ár. Gunnar var búinn að nuddast í mér að fá mig til að mæta og svona. Á endanum segir maður já. Það er gaman að spila með þessum strákum."
Samningi hans við ÍBV, uppeldisfélagið, var rift eftir síðustu leiktíð. „Ég fékk aldrei útskýringar. Það var tekin ákvörðun af stjórn ÍBV um að rifta við mig samningi. Síðan þá hef ég ekki talað við þá menn," sagði Víðir sem útilokar ekki að spila meira í sumar.
Athugasemdir