Óvíst hvort Casemiro og Maguire verði áfram hjá Man Utd - Glasner ætlar ekki að framlengja - Joelinton gæti farið frá Newcastle
Kristall Máni: Hef alltaf vitað að fótboltahæfileikarnir hverfa ekki
Jóladagatalið: Stólar fullir af hálfvitum
Jóladagatalið: „Vonandi hefur Gummi Ben eitthvað lært af þessu“
Kominn í grænt eftir eitt tímabil í Svíþjóð - „Eftir það tók ég ákvörðun um að fara annað“
Ætlaði ekki að koma heim - „Þegar ég talaði við Óskar lá þetta fyrir“
Jóladagatalið: Kristján Óli eftir að hafa skorað ljótasta markið á ferlinum
Jóladagatalið: Auðunn Blöndal og Gaui Þórðar í geitungavandræðum
Ísak bendir á augljóst vandamál: Erum ekki nógu góðir þar
Jóladagatalið: Allir á þjóðhátið, það er skylda hjá mér!
Æfingaleikur: Aron Kristófer skoraði frá miðju gegn Leikni
Jóladagatalið: Þið vitið aldrei neitt um okkur
„Láki tengdi okkur við góðan mann erlendis"
Ævintýraþjálfari Völsungs: Þegar þú ferðast um heiminn verður þú að taka ákvarðanir hratt
Ólafur Ingi: Heilt yfir stoltur en fannst við vera pínu klaufar
Margt í gangi í hausnum á Damir fyrir leikinn - „Spurðu þá sem stjórna klúbbnum“
Höskuldur: Þau eru ekkert verðugri en við að vera þarna
Anton Ari: Sannaði fyrir mér að við áttum alveg erindi hingað
Jóladagatalið: Frasabók Margrétar Láru
Arnór Gauti: Þetta er bara sturlun
Sá fyrir sér að ljúka ferlinum með Blikum: Því miður vildi klúbburinn leita eitthvað annað
banner
   fös 22. júlí 2022 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ari Sigurpáls: Hefði viljað vinna stærra
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ari Sigurpálsson leikmaður Víkings var til viðtals hjá Fótbolta.net eftir sigur liðsins gegn TNS í forkeppni Sambandsdeildarinnar í gærkvöldi.



Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 -  0 The New Saints

„Ég hefði viljað vinna stærra ef ég á að vera hreinskilinn, mér fannst við 'dóminera' leikinn en við hefðum átt að nýta færin okkar betur," sagði Ari.

Ari kom til liðsins í vetur en það er mikil samkeppni í fremstu víglínu hjá Víkingi, þrátt fyrir það hefur Ari tekið þátt í öllum leikjum liðsins í sumar.

„Við erum með geggjaða sóknarmenn, þannig er það bara hjá stórum klúbb á Íslandi. Mér finnst við allir verða betri og betri því það er svo mikil samkeppni, það er engin fastur í liðinu, það er bara geggjað fyrir mig til að bæta mig."

Hann er mjög sáttur með byrjunina hjá liðinu á tímabilinu.

„Þetta er búið að vera geggjað, aðeins hikst í byrjun hjá liðinu. Það eru allir komnir í rútínu núna og erum að spila saman sem lið og persónulega er ég mjög sáttur."


Athugasemdir
banner