Grótta fékk skell gegn Fylki í Árbænum í 19. umferð Lengjudeildarinnar. Með sigrinum þá innsiglaði Fylkir sæti í Bestu deildinni á næsta tímabili.
„Við ætluðum í þennan leik til að vinna hann en það gekk ekki eftir og ég held að betra liðið hafi unnið þennan fótboltaleik þegar öllu er á botninn hvolft," sagði varnarmaðurinn Arnar Þór Helgason, fyrirliði Gróttu, eftir leik.

Lestu um leikinn: Fylkir 5 - 1 Grótta
„Við erum svekktir yfir því hvernig við förum inn í leikinn og það er mjög efitt að vera 3-0 undir í hálfleik. Þeir voru betri í stóru 'mómentunum'"
Grótta á ekki lengur raunhæfa möguleika á að komast upp.
„Við höldum áfram þar til þetta er alveg búið. Þetta er langsótt og HK mun án efa klára sitt prógramm. Við klárum þessa þrjá leiki og höfum gaman að því, reynum að vinna eins marga og við getum."
„Við höfum verið alltof mikið jójó-lið í sumar og þurfum að laga það fyrir næsta ár ef við ætlum að fara upp," segir Arnar sem sér ekki neitt annað í stöðunni en hann verði áfram í liði Gróttu á næsta ári.
Athugasemdir