Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 29. ágúst 2012 18:40
Ívan Guðjón Baldursson
Walcott ekki á leið frá Arsenal
Mynd: Getty Images
Sky Sports greinir frá því að Arsenal og Theo Walcott hafa komist að samkomulagi þess efnis að leikmaðurinn fari ekki frá félaginu í sumar.

Walcott er búinn að funda með Arsenal síðustu vikurnar en kröfur hans eru of háar fyrir félagið og er verið að reyna að ná samkomulagi.

Greint var frá því fyrr í vikunni að Arsenal væri reiðubúið að selja leikmanninn en Manchester City og Liverpool voru talin vera líklegust til að kaupa hann.

Samningur Walcott rennur út í júní á næsta ári en Sky Sports segir að Walcott sé ekki á förum og að samningsviðræður milli hans og félagsins muni halda áfram næstu vikurnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner