Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 05. mars 2014 11:30
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sunnlenska.is 
Bergsteinn í Selfoss (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Selfyssingar hafa fengið til liðs við sig markmanninn Bergstein Magnússon sem kemur til liðsins frá Keflavík. Þetta kemur fram á Sunnlenska.is.

Bergsteinn verður tvítugur á þessu ári en hann spilaði þrjá leiki með Keflvíkingum í Pepsi-deildinni í fyrra.

Hann hefur æft með Selfyssingum undanfarnar vikur og spilaði meðal annars úrslitaleikinn í Fótbolti.net mótinu.

Bergsteinn lék einnig með BÍ/Bolungarvík og Keflavík í Fótbolta.net mótinu en nú er ljóst að hann verður hjá Selfyssingum í sumar.

Hann á að baki sautján landsleiki fyrir U17 og U19 ára lið Íslands.

Bergsteinn er annar markvörðurinn sem gengur til liðs við Selfoss í vetur en áður hafði Vignir Jóhannesson komið frá Breiðabliki. Jóhann Ólafur Sigurðsson, sem varði mark Selfoss í fyrra, hefur lagt hanskana á hilluna.
Athugasemdir
banner
banner