Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mið 08. maí 2019 09:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Solskjær að missa þolinmæðina gagnvart Martial
Mynd: Getty Images

Solskjær er sagður orðinn þreyttur á viðhorfi Martial. Í grein Times segir að Solskjær telji að Martial hafi ekki verið að leggja sig allan fram á æfingum og stundum í leikjum.

Hinn 23 ára gamli Martial misst af 1-1 jafnteflinu gegn Huddersfield og var það sagt vera vegna meiðsla. Þá kom hann ekki við sögu í 1-1 jafnteflinu gegn Chelsea þar á undan. Hann sat allan tímann á bekknum.

Hann gæti þá einnig misst af síðasta leik tímbilsins gegn Cardiff þar sem Solskjær vonast til þess að spila ungum leikmönnum eins Tahith Chong og Mason Greenwood.

Martial skrifaði undir nýjan fimm ára samning í janúar síðastliðnum. Hann þarf að sanna sig fyrir Solskjær.

Það er ljóst að Manchester United verður í Evrópudeildinni á næsta tímabili.
Athugasemdir
banner
banner