Fylkir 1 - 3 FC Torpedo Zhodino
1-0 Pape Mamadou Faye (víti) 32'
1-1 Yuri Ostroukh 41'
1-2 Igor Krivobok (víti) 86'
1-3 Igor Krivobok 88'
1-0 Pape Mamadou Faye (víti) 32'
1-1 Yuri Ostroukh 41'
1-2 Igor Krivobok (víti) 86'
1-3 Igor Krivobok 88'
Fylkismenn mættu Hvít-Rússneska liðinu FC Torpedo Zhodino á Laugardalsvellinum í seinni leik þeirra í Evrópudeildinni. Fyrri leikur liðanna, sem fór fram ytra, fór 3-0 fyrir Hvít-Rússunum. Þess vegna var ljóst að Fylkismanna beið erfitt verkefni í kvöld þar sem þeir þurftu minnst þriggja marka sigur til að komast áfram.
Leikurinn fór nokkuð rólega af stað en þó voru Fylkismenn betri aðilinn og sköpuðu sér fleiri færi í fyrri hálfleiknum. Það fyrsta fékk Albert Brynjar Ingason eftir 5 mínútna leik þegar hann fékk sendingu inn fyrir á vítateiginn frá Andra Þór Jónssyni, en hann hafði lítið svæði til að athafna sig og skot hans fór beint á Vladimir Bushma í marki Hvít-Rússana.
Eftir kortersleik fengu gestirnir sitt fyrsta færi þegar Denis Karolik fékk boltann rétt innan vítateigs Fylkismanna og náði skoti sem fór yfir markið. Tíu mínútum síðar fékk Albert boltann í góðu færi inni á teig, en hann hitti boltann illa og skaut fram hjá. Eftir hálftíma leik dróg síðan heldur betur til tíðinda. Þá komst Andrés Már Jóhannesson með boltann inn í vítateig gestanna og var felldur, og vítaspyrna var umsvifalaust dæmd. Pape Mamadou Faye steig á punktinn og skoraði, en Bushma hafði hendur á boltanum.
Pape komst í færi stuttu eftir markið eftir glæsilega stungusendingu frá Jóhanni Þórhallssyni. Hann náði þá að leggja boltann fyrir sig en Bushma var þá kominn í gott úthlaup og handsamaði boltann áður en Pape náði að skjóta. Á 41. mínútu náði Hvít-Rússarnir síðan að jafna leikinn. Aukaspyrna var þá dæmd á Kjartan Ágúst Breiðdal rétt utan vítateigs. Spyrnuna tók Yuri Ostroukh og hann smellti boltanum upp í samskeytin, gjörsamlega óverjandi fyrir Andrew Bazi í marki Fylkis.
Þetta mark kom eins og köld vatnsgusa framan í Fylkismenn, enda var það þvert gegn gangi leiksins. Þeir náðu þó að skapa sér færi áður en fyrri hálfleiknum lauk þegar Albert Brynjar og Andrés Már náðu að spila sig saman í gegnum vörn gestanna en skotið frá Andrési var máttlaust og auðvelt fyrir Bushma að verja.
Í uppbótartíma fyrri hálfleiks náðu leikmenn FC Torpedo að skora mark með skalla eftir aukaspyrnu en markið var dæmt af þar sem brotið var á Andrew Bazi. Liðin gengu því jöfn til búningsherbergja þegar flautað var til hálfleiks.
Í upphafi seinni hálfleiks virtist sem Fylkismenn ætluðu að halda uppteknum hætti frá í fyrri hálfleik þegar Pape fékk stungusendingu inn fyrir frá Alberti en skot hans var máttlaust og fór beint á Bushma í markinu. Gestirnir tóku þá aðeins við sér og áttu tvö markskot með mínútu millibili. Fyrst átti Igor Krivobok skot af vítateig sem Þórir Hannesson náði að henda sér fyrir. Síðan átti Andrei Kazaryn skot sem fór fram hjá.
Eftir klukkutíma leik fengu Fylkismenn aukaspyrnu rétt utan vítateigs og úr henni skaut Jóhann Þórhallsson rétt fram hjá. Því miður urðu færi þeirra ekki fleiri í leiknum, en hann datt nokkuð niður eftir þetta og virtist sem hvorugt liðið ætlaði að bæta við mörkum. Ekkert markvert gerðist síðan fyrr en 5 mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Þá var vítaspyrna dæmd á Andra Hermannsson sem var nýkominn inn á sem varamaður. Hann virtist þó fara í boltann og því um talsverðan vafadóm að ræða. Á punktinn fór síðan Igor Krivobok og hann skoraði af öryggi.
Það liðu síðan einungis tvær minútur þangað til Hvít-Rússarnir innsigluðu sigur sinn, og þá var Igor Krivobok aftur á ferðinni. Hann fékk þá boltann utan teigs, og skaut fallegu skoti sem fór yfir Andrew Bazi og endaði rétt undir slánni. Ekkert markvert gerðist eftir það og því var 3-1 sigur FC Torpedo Zhodino staðreynd. Þeir fara því áfram, 6-1 samanlagt, en Fylkismenn eru núna dottnir út úr bæði Evrópudeildinni og Visa bikarnum og eiga því einungis eftir leiki í deildinni á þessu tímabili. Spilamennska þeirra í fyrri hálfleik er þó eitthvað sem þeir geta tekið með sér í komandi átök í deildinni.
Byrjunarlið Fylkis: Andrew Bazi, Kristján Valdimarsson, Ásgeir Börkur Ásgeirsson, Þórir Hannesson, Andrés Már Jóhannesson, Jóhann Þórhallsson, Pape Mamadou Faye, Kjartan Ágúst Breiðdal (Tómas J Þorsteinsson 70'), Albert Brynjar Ingason (Friðrik Ingi Þráinsson 70'), Ásgeir Örn Arnþórsson (Andri Hermannsson 84'), Andri Þór Jónsson
Ónotaðir varamenn: Fjalar Þorgeirsson, Einar Pétursson, Davíð Þór Ásbjörnsson
Byrjunarlið FC Torpedo Zhodino: Vladimir Bushma, Yuri Ostroukh, Anton Brusnikin (Artem Solovei 75'), Denis Karolik (Ilya Aleksievich 68'), Artur Levitski, Aliaksei Kazlou, Aliaksei Martynets, Valery Karshakevici, Sergei Kontsevoi, Andrei Kazaryn (Dimitry Hintav 83'), Igor Krivobok
Ónotaðir varamenn: Denis Parechin, Eugeni Bronovitskiy, Yuri Ryzhko, Dzmitry Karou
Gul spjöld: Aleksei Kazlou 17' Anton Brusnikin 43' Tómas J Þorsteinsson 91'
Dómari: Slavko Vincic (Slóvenía) - Ágætur, dæmdi samt oft á væg brot.
Áhorfendur: 658
Maður leiksins: Andrés Már Jóhannesson (Fylki)


