Sancho vill ekki snúa aftur til Man Utd - Dumfries vill fara til Man Utd - Chelsea vill Osimhen
banner
   sun 28. mars 2021 06:00
Aksentije Milisic
Torreira snýr aftur til Arsenal ef hann fær að spila
Mynd: Getty Images
Lucas Torreira, leikmaður Arsenal, segir að hann muni einungis snúa aftur til liðsins ef hann fái að spila.

Þessi Úrúgvæi er á láni hjá Atletico Madrid en þar hefur hann fengið mjög lítið að spila. Hann hefur byrjað einungis þrjá leiki hjá Madrid í La Liga og einu sinni spilað allan leikinn.

Torreira var sendur á lán eftir að Mikel Arteta sá ekki fram á að geta notað leikmanninn í leikkerfi sínu. Þessi 25 ára gamli leikmaður á tvö ár eftir af samningi sínum við Arsenal.

Torreira er sagður klár í að snúa aftur til Arsenal en einungis ef hann fær spiltíma. Torreira kom til Arsenal frá Sampdoria árið 2018 en Unai Emery fékk hann til liðsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner