Álftanes og Sindri gerðu jafntefli í 3. deild karla í leik sem átti upprunalega að fara fram í gær.
Leiknum var frestað um einn dag á meðan beðið var eftir niðurstöðu smitrakningateymis í tengslum við smit hjá leikmanni karlaliðs Stjörnunnar.
Leiknum var frestað um einn dag á meðan beðið var eftir niðurstöðu smitrakningateymis í tengslum við smit hjá leikmanni karlaliðs Stjörnunnar.
Það var hægt að spila leikinn í dag og var niðurstaðan 1-1 jafntefli. Sindri leiddi 1-0 í hálfleik með marki frá Cristofer Moises Rolin, en snemma í seinni hálfleik jafnaði Jón Helgi Pálmason fyrir Álftanes.
Álftanes er með tvö stig eftir tvo leiki og Sindri er með eitt stig.
Tindastóll gerði góða ferð í bæinn og vann þar sigur á Vængjum Júpiters. Luke Morgan Conrad Rae kom Stólunum yfir eftir stundarfjórðung og bætti Jónas Aron Ólafsson við öðru marki fyrir leikhlé.
Ervist Pali minnkaði muninn fyrir Vængina á 78. mínútu, en lengra komust þeir ekki og lokatölur 2-1. Tindstóll er með fjögur stig, en Vængir eru á botni deildarinnar án stiga. Vængir eru eina liðið sem er enn án stiga.
Vængir Júpiters 1 - 2 Tindastóll
0-1 Luke Morgan Conrad Rae ('15)
0-2 Jónas Aron Ólafsson ('38)
1-2 Ervist Pali ('78)
Álftanes 1 - 1 Sindri
0-1 Cristofer Moises Rolin ('34)
1-1 Jón Helgi Pálmason ('57)
Athugasemdir