Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   mán 16. apríl 2012 10:25
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Luis Suarez: Ég verð áfram hjá Liverpool
Mynd: Getty Images
Luis Suarez segist ætla að leika áfram með Liverpool á næsta tímabili þrátt fyrir að hafa verið orðaður við brottför frá félaginu.

Suarez var dæmdur í átta leikja bann fyrr á tímabilinu og í kjölfarið fór af stað orðrómur um að hann myndi ganga til liðs við Paris St Germain í sumar.

Suarez segist hins vegar ekki ætla að fara frá Liverpool á næstunni.

,,Ég mun vera áfram hjá Liverpool. Það er augljóst að ég verð áfram hér," sagði Suarez.

,,Ég á fjögur ár eftir af samningi mínum, ég er mjög ánægður með að vera hér og vona að mér gangi áfram vel."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner