Astana 1 - 2 Partizan
0-1 Umar Sadiq ('29 )
0-2 Umar Sadiq ('73 )
1-2 Rúnar Már Sigurjónsson ('85 )
0-1 Umar Sadiq ('29 )
0-2 Umar Sadiq ('73 )
1-2 Rúnar Már Sigurjónsson ('85 )
Landsliðsmaðurinn Rúnar Már Sigurjónsson var á sínum stað á miðju Astana frá Kasakstan sem mætti Partizan frá Belgrad í L-riðli Evrópudeildarinnar í dag.
Nígeríumaðurinn Umar Sadiq, 22 ára lánsmaður frá Roma, skoraði bæði mörk Partizan í 2-1 útisigri.
Rúnar Már átti flottan leik fyrir Astana og minnkaði muninn á 85. mínútu með frábæru marki. Hann lét vaða fyrir utan teig og boltinn hafnaði í fjærhorninu. Glæsilegt skot.
Lengra komst Astana ekki og liðið er án stiga eftir tvær umferðir. Partizan er með fjögur stig.
Markið má sjá hér að neðan af Vísi:
Athugasemdir