Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 03. október 2020 07:00
Victor Pálsson
Tottenham hafnaði öðru tilboði frá PSG
Dele Alli fyrir miðju.
Dele Alli fyrir miðju.
Mynd: Getty Images
Tottenham á Englandi hefur hafnað öðru tilboði frá Paris Saint-Germain í miðjumanninn Dele Alli.

Sky Sports greinir frá þessu en PSG reynir þessa stundina að fá Alli á láni frá enska liðinu áður en glugginn lokar í næstu viku.

Sky greinir frá því að Tottenham hafi ekki áhuga á að losna við Alli en samband hans og stjóranns Jose Mourinho er talið viðkvæmt.

Það má búast við því að PSG komi með annað tilboð á næstu dögum en glugginn lokar strax á mánudaginn.

Tottenham keypti framherja í gær en Carlos Vinicius samdi við félagið frá Benfica.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner