Pep Guardiola, stjóri Manchester CIty, á von á því að fleiri leikmenn fari frá félaginu í sumar.
Spánverjinn hefur áður sagt að hann muni yfirgefa félagið ef það minnkar ekki hópinn í sumar.
Eins og staðan er núna eru 30 leikmenn í hópnum, sem er eðlilegt á undirbúningstímabili, en hann vill minnka hópinn töluvert áður en haldið er inn í nýtt tímabil.
Jack Grealish er til að mynda ekki í hópnum sem spilar á HM félagsliða. Hann má fara og þá gæti félagið losað sig við John Stones og James McAtee.
Kalvin Phillips og Kyle Walker eru væntanlega á förum. Phillips spilaði með Ipswich á tímabilinu á meðan Walker var á láni hjá AC Milan.
„Ég myndi elska að hafa alla þá leikmenn sem eru hér núna út allt tímabilið. Ég hef engu yfir að kvarta varðandi hegðun leikmanna, en þeir verða óánægðir, leiðir og vonsviknir. Það vil ég ekki.“
„Þetta er ekki vandamál fyrir mig. Ég get haft fleiri leikmenn til að velja úr, en ég er ekki hrifinn af því að hafa fimm, sex eða sjö leikmenn heima ef það eru engin meiðsli.“
„Ég er ekki að gera þetta fyrir mig heldur fyrir þá. Þess vegna verðum við að sjá hvað gerist. Það er enn langt í gluggalok,“ sagði Guardiola.
Athugasemdir