Guehi tilbúinn að sitja út samninginn - Há laun Rodrygo hindrar skipti hans til Arsenal - Höjlund til Napoli?
   sun 22. júní 2025 18:50
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Leiknum á Akranesi seinkar
Mynd: EPA
Búið er að seinka leik ÍA og Stjörnunnar um korter en það er meðal annars vegna umferðar. Vegaframkvæmdir í gangi og bara ein akgrein opin frá Grafarvoginum og upp í Mosó.

Lestu um leikinn: ÍA 0 -  3 Stjarnan

Leikurinn átti upphaflega að hefjast klukkan 19:15 en mun hefjast klukkan 19:30.

Dean Martin stýrir ÍA í dag eftir að Jón Þór Hauksson var látinn taka pokann sinn en Lárus Orri Sigurðsson mun í kjölfarið taka við stjórnartaumunum.

Samkvæmt upplýsingum sem Fótbolti.net hefur eru allir þátttakendur leiksins komnir á staðinn.

ÍA er á botninum með 9 stig en Stjarnan í 5. sæti með 17 stig.
Athugasemdir
banner