Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 30. janúar 2023 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Bayern getur keypt Cancelo á rúmar 60 milljónir punda
Mynd: EPA
Joao Cancelo er á leið í læknisskoðun hjá Bayern Munchen. Hann er á leið til félagsins á láni frá Manchester City út tímabilið.

Þýsku meistararnir geta svo nýtt sér kaupákvæði í lánssamningnum.

Það ákvæði gerir Bayern kleift að fá Cancelo í sínar raðir ef félagið greiðir City 61,5 milljónir punda (70 milljónir evra).

Cancelo hefur verið í takmörkuðu hlutverki hjá City undanfarnar vikur.

Stjórinn, Pep Guardiola, hefur aðeins breytt leikstíl liðsins og þeir Nathan Ake, Kyle Walker, John Stones og Rico Lewis hafa í staðinn fengið að spila meira.

Cancelo er 28 ára gamall og á að baki 41 landsleik fyrir Portúgal.

Hann getur bæði spilað sem hægri og vinstri bakvörður.
Athugasemdir
banner
banner