Afturelding hefur gengið frá samningi við spænska varnarmanninn Roger Bonet, Ruxi, en hann mun leika með félaginu út tímabilið.
Ruxi er 24 ára gamall og lék áður með Formentara í spænsku 2. deildinni á síðasta tímabili.
Brasilíski varnarmaðurinn Romario Leiria mun einnig yfirgefa félagið hann hann hefur verið að berjast við mikil meiðsli og lék aðeins fjóra leiki með Aftureldingui í deildinn á þessu tímabili.
Afturelding er í 11. sæti Inkasso deildar karla með 10 stig.
Athugasemdir