Gregg Ryder, þjálfari Þróttar R. í Inkasso-deild karla í knattspyrnu, var himinlifandi með 2-1 sigur liðsins á Fram í 11. umferð deildarinnar í kvöld. Þróttur er í þriðja sæti með 23 stig þegar helmingur er búinn af móti.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 2 - 1 Fram
Guðmundur Magnússon kom Frömurum yfir áður en Viktor Jónsson jafnaði undir lok fyrri hálfleiks. Viktor var síðan aftur á ferðinni fyrir Þrótt í síðari hálfleik og sigur heimamanna því staðreynd.
„Það er alltaf gaman að vinna Fram. Það er rígur á milli þessara liða, þar sem þau eru nálægt hvoru öðru. Það er gott að vera yfir í þessu einvígi í Laugardalnum," sagði Gregg.
Fram var að spila taktíkina 3-5-2 en Pedro Hipolito, nýráðinn þjálfari Fram, hefur notað þessa taktík áður í Portúgal er hann þjálfaði Atletico CP.
„Þetta hefur auðvitað áhrif á hvernig þeir spila. Þeir voru að spila 3-5-2 og þjálfarinn þeirra notaði sömu taktík í Portúgal, sömu föstu leikatriðin og við vissum það, svo við gátum undirbúið okkur vel og mér fannst við gera það."
„Þeir beita skyndisóknum og fá bakverðina til að keyra hratt upp og miðjumennina og þeir náðu því nokkrum sinnum vel í fyrri hálfleik og við gerðum okkur erfitt fyrir."
Guðmundur kom Fram yfir en Gregg hafði litlar áhyggjur af því.
„Ég hafði ekki áhyggjur af því að þeir náðu fyrsta markinu en við skorum alltaf mörk og Viktor gerði tvö mörk. Við fáum alltaf mörk.
„Þessi leikstíll hentar honum vel og það er mikil samkeppni á þessu svæði," sagði Ryder í lokin.
Stöðutaflan

L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir