Óvíst hvort Casemiro og Maguire verði áfram hjá Man Utd - Glasner ætlar ekki að framlengja - Joelinton gæti farið frá Newcastle
Kristall Máni: Hef alltaf vitað að fótboltahæfileikarnir hverfa ekki
Jóladagatalið: Stólar fullir af hálfvitum
Jóladagatalið: „Vonandi hefur Gummi Ben eitthvað lært af þessu“
Kominn í grænt eftir eitt tímabil í Svíþjóð - „Eftir það tók ég ákvörðun um að fara annað“
Ætlaði ekki að koma heim - „Þegar ég talaði við Óskar lá þetta fyrir“
Jóladagatalið: Kristján Óli eftir að hafa skorað ljótasta markið á ferlinum
Jóladagatalið: Auðunn Blöndal og Gaui Þórðar í geitungavandræðum
Ísak bendir á augljóst vandamál: Erum ekki nógu góðir þar
Jóladagatalið: Allir á þjóðhátið, það er skylda hjá mér!
Æfingaleikur: Aron Kristófer skoraði frá miðju gegn Leikni
Jóladagatalið: Þið vitið aldrei neitt um okkur
„Láki tengdi okkur við góðan mann erlendis"
Ævintýraþjálfari Völsungs: Þegar þú ferðast um heiminn verður þú að taka ákvarðanir hratt
Ólafur Ingi: Heilt yfir stoltur en fannst við vera pínu klaufar
Margt í gangi í hausnum á Damir fyrir leikinn - „Spurðu þá sem stjórna klúbbnum“
Höskuldur: Þau eru ekkert verðugri en við að vera þarna
Anton Ari: Sannaði fyrir mér að við áttum alveg erindi hingað
Jóladagatalið: Frasabók Margrétar Láru
Arnór Gauti: Þetta er bara sturlun
Sá fyrir sér að ljúka ferlinum með Blikum: Því miður vildi klúbburinn leita eitthvað annað
banner
   fim 23. júní 2022 22:05
Arnar Laufdal Arnarsson
Kjartan Henry: Ömurlegt fyrir okkur KR-inga að vera á þessum stað
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
„Það er langt síðan maður hefur tapað 4-0... sem betur fer," sagði Kjartan Henry Finnbogason sóknarmaður KR en Breiðablik vann 4-0 sigur gegn KR-ingum í kvöld.

„Við töpuðum á móti betra liði í dag, það er ekkert flóknara en það. Mér fannst við vera góðir í fyrri hálfleik en gefum þeim tvö mörk. Finnur á þversendingu, eitthvað sem maður lærir í fimmta flokki að maður á ekki að gera og Finnur veit það. Þeir refsa bara. Svo þetta víti, það er erfitt að lenda 2-0 undir gegn Blikum á þeirra heimavelli."

Lestu um leikinn: Breiðablik 4 -  0 KR

„Við erum ekki ánægðir með hvar við erum í töflunni. Það er ömurlegt fyrir okkur KR-inga að vera á þessum stað sem við erum í dag. Enginn spyr að því hvort við eigum skilið að vera ofar."

Kjartan byrjaði á bekknum í leiknum í kvöld. Finnst honum sjálfum persónulega sem hann eigi mikið inni?

„Já að sjálfsögðu, og við sem lið. Þetta snýst ekki um mig."

Sjáðu viðtalið í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner