Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mán 04. júlí 2011 17:29
Hörður Snævar Jónsson
Heimild: Sky 
Aston Villa leiðir kapphlaupið um N´Zogbia
Mynd: Getty Images
Aston Villa leiðir kapphlaupið um Charles N´Zogbia leikmann Wigan samkvæmt heimildum Sky.

Alex McLeish nýr stjóri Villa vill fá N´Zogbia á Villa Park en hann vildi líka fá hann til sín þegar hann stjórnaði Birmingham.

Dave Whelan eigandi Wigan hefur sagt að ef félagið fær gott tilboð muni það selja N´Zogbia.

Liverpool, Newcastel og Sunderland hafa líka verið sögð hafa áhuga á þessum 25 ára gamla Frakka.
banner
banner
banner