Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 21. september 2012 16:23
Elvar Geir Magnússon
Fowler vill að Evra og Suarez verði með blóm
Robbie Fowler í leik með Liverpool.
Robbie Fowler í leik með Liverpool.
Mynd: Getty Images
Robbie Fowler, fyrrum leikmaður Liverpool, vill að Patrice Evra og Luis Suarez leiki stórt hlutverk á sunnudag þegar kemur að því að minnast þeirra sem létu lífið í Hillsborough-slysinu.

Liverpool tekur þá á móti Manchester United á Anfield.

Eins og flestir vita var Suarez dæmdur fyrir að vera með kynþáttaníð í garð Evra og þurfti að afplána átta leikja bann. Suarez neitaði svo að taka í höndina á Evra fyrir seinni leik liðanna á síðasta tímabili.

Hugmyndir Fowler eru á þann veg að Suarez myndi leggja blómsveig fyrir framan stuðningsmenn Manchester United til minningar um þá sem létust í München-flugslysinu. Að sama skapi myndi Evra minnast þeirra sem létu lífið í Hillsborough-slysinu með því að leggja blómsveig fyrir framan Kop-stúkuna.

Það má búast við mögnuðu andrúmslofti á Anfield á sunnudag. Allir stuðningsmenn Manchester United sem mæta á leikinn munu fá í hendurnar bréf frá Sir Alex Ferguson þar sem hann ítrekar að allir ætli að taka höndum saman til að minnast þeirra sem létust.

Smelltu hér til að lesa bréfið frá Ferguson.
Athugasemdir
banner
banner
banner